16/9

September 17th, 2008 – 12:33 am
Tagged as: Blog

Jæja… ekkert varð af Lundúnaferð minni á sunnudaginn og frídögum mínum yfir 3 vikna tímabil fækkaði úr tveimur niður í einn á 4 vikna tímabili. Það sem ég skrifaði um daginn varðandi lögheimilið var sko engin lygi.

Allavegna.. laugardagsnóttina veiktist ég svo illa af blöðrubólgu (too much info? Don’t care..) að ég sá ekki fram á að vera neitt sérlega skemmtilegur félagsskapur. Var samt furðu hress eftir að sýklalyfin fóru loksins að virka og þrátt fyrir aðeins 2 tíma svefn um nóttina þá kíkti ég aðeins á röltið í bænum, nærði mig á traditional ensku pasty og skrapp svo í smá stund á barinn minn og var fólkinu þar ómetanlegur félagsskapur.. já einmitt. Ég var skriðin upp í rúm um 6 leitið með bauga niður á hné þegar meðleigjandinn minn sem einnig vinnur á barnum hringdi í mig og spurði hvort ég gæti leyst hana af því hún væri orðin svo slöpp.. aha, því ég var einmitt frískari en íþróttaálfurinn á góðum degi. En.. þið þekkið mig.
Ég gat að sjálfsögðu ekki neitað og skilið eigendurna eftir eina þar sem þeir voru orðnir dálítið rúllandi kenndir, enda sunnudagur. Þetta kvöld var ég því tekin í dýrðlingatölu og eru eigendurnir núna önnum kafnir við að reisa handa mér hof. Svo, til þess að blása egóið mitt upp úr öllu valdi og láta ykkur fá algera klígju þá féllu eftirfarandi orð af vörum kvennsunnar eftir vinnu í kvöld: “Can I just say what a pleasure it is to work with you”. Hún virðist ekki beint vera sú týpa sem rífur af sér lofin og hrósin svoleiðis að ég er vel sátt. En núna er ég hætt að stæra mig af því hversu æðislegur starfskraftur ég er.. ég lofa.. haha.
Ég ákvað hisvegar þarna um kvöldið að misnota aðstöðu mína sem vaktatöflugerandi (ég held að ég hafi verið að búa til nýtt orð þarna) og gefa mér frí á mánudaginn næsta ásamt því að hætta kl 7 á sunnudeginum og byrja ekki fyrr en 3 á þriðjudeginum þannig að það verður aldeilis tekið á því í London til að bæta upp fyrir lost times. Mikið hlakka ég til maður minn. Ég er búin að ákveða daðra við menninguna, missa Tate-dóminn og tæla galleríin hægri vinstri. Ójá.. það verður gott að komast aðeins í siðmenninguna.

Ráðgátan um hertrukkinn hefur verið leyst. Leigusalinn skildi eftir miða með þeim upplýsingum að hún hafði orðið vör við einhvern “dodgy” mann við húsið okkar og að henni hefði þótt hann sýna bílnum þeirra, sem hefur verið hérna í pössun, óvenju mikinn áhuga. Þau hjú tóku því upp á því að parkera trukknum þeirra fyrir aftan hann til þess að maðurinn færi ekki að reyna að stela honum. And it just happened to be an army truck.. já þau eru dálítið spes. Og já, mér líður mun betur af að vita af einhverjum weirdó á vappi í kringum húsið okkar.. ehh…

Af því ég elska ykkur þá verð ég að deila þessu lagi með ykkur áður en ég kveð í bili.. ég fæ bara ekki nóg af því.

En jæja, I’m off babies..
X

15/9

September 15th, 2008 – 3:34 pm
Tagged as: Blog

Meðleigjandinn minn var í þann mund að senda mér sms sem inniheldur eftirfarandi texta:

“Any idea why theres an army truck parked in our drive?”

Eins og gefur kannski að skilja þá varð ég hvumsa..

14/9

September 14th, 2008 – 11:12 am
Tagged as: Blog

Yfirmaðurinn minn átti afmæli um daginn. Að sjálfsögðu þurftum við stöllur að leggjast undir feld og finna flottustu gjöfina. Við rápuðum á milli búða með augun opin en ekkert greip athygli okkar að ráði.. þangað til við gengum framá dauðan gúmmíkjúkling. Við sannfærðumst á staðnum um að þetta væri sko gjöfin, pökkuðum kjúllanum inn og færðum honum í vinnuna. Það má með sanni segja að við höfum hitt naglann á höfuðið. Þvílík lukka sem hann hefur valdið. Hann hefur því miður orðið fyrir smá áreiti kúnna sem hafa þurft að sanna fyrir sér og öðrum að það sé hægt að blása hann upp á milli lappanna en hann tórir enn greyið.
Kona yfirmannsins toppaði svo brandarann í gær þegar hún kom færandi hendi með kjúklingalyklakippur, sem verpa ef þær eru kreistar, handa okkur stöllum.. það þarf ekki mikið til að gleðja mann.

13/9

September 13th, 2008 – 10:15 am
Tagged as: Blog

Tilvera mín er hrunin.. samkvæmt upplýsingum heimildarmanns míns þá er Súperman logandi hýr. Þetta þýðir að ég þarf aldeilis að taka til í fantasíuhorninu mínu. What to do.. what to do?

12/9

September 12th, 2008 – 9:58 pm
Tagged as: Blog

Jæja elskurnar. Það er alveg kominn tími á smá öppdeit, ekki satt? Reyndar er ekki frá miklu að segja.. ég er búin að vera að vinna meira og minna síðustu 2 vikurnar. Ég fæ heila 2 daga í frí á 3 vikna tímabili þannig að ég tók upp á því að flytja lögheimili mitt í vinnuna.
Eins og gefur að skilja eru allskonar karakterar sem sækja pöbbann minn. Sá sem er sennilega einna eftirminnilegastur er Dolphin Boy en hann er búinn að vera regular frá því áður en yfirmennirnir mínir fóru að reka barinn. Hann kemur á hverju kvöldi, drekkur sína 6-8 pints, borðar einn poka af flögum og hverfur síðan á braut eins og vindurinn. Hann hlaut þetta viðurnefni áður en eigendurnir komust að því hvað hann heitir en ástæðan fyrir nafninu er sú að hann sönglar með músíkinni og hljómar alveg eins og höfrungur.. ég gat ekki annað en brosað út í annað þegar ég heyrði í honum fyrst.

Annars ríkir bara gleði í húsinu mínu þessa dagana líkt og vanalega. Póstmaðurinn kom í dag með kassa fullan af leikföngum sem þær rugluðu ákváðu að panta sér eftir nokkur tekílaskot.. uppáhaldið mitt er samt sennilega uppblásni, bleiki púðinn með áfasta titraranum. Þær eru ótrúlegar.. sjaldan dauð stund á Airlie Corner!

Jæja.. best að fara að fleygja sér. Tjútt á morgun og svo hittingur hjá Ninu í London á sunnudaginn.. busy bunny these days.

Ta!

10/9

September 10th, 2008 – 3:04 pm
Tagged as: Blog

And we’re back in business! Eftir grát og gnístan tanna fengust þeir sem hýsa síðuna mína loks til að kippa henni í liðinn. Ennþá er eitthvað smá pickles í gangi varðandi linkana en það leysist seinna. Gleðst bara yfir því að vera aftur komin í samband við umheiminn.

24/8

August 25th, 2008 – 12:53 am
Tagged as: Blog

Síðustu þrjá daga eða svo hefur mér tekist eftirfarandi..:

..að setjast á brenninetlu.
..að ná að tæla meðleigjendurna með mér upp í tré. zetta var stórt tré..
..að hrynja niður úr trénu..
….eftir að hafa prílað upp í það í pilsi sem bauð ekki upp á annað en að vera tosað upp í mitti rétt á meðan.
..að ganga á full speed á svalahurðina heima. Mér til málsvarnar þá var dimmt.
..að stíga á snigil á sokkaleistunum undir svipuðum kringumstæðum og í atvikinu fyrir ofan.. já það er helvítis myrkur hérna.
..að heyra einn kúnnann minn segja “it’s fun to finally have a person with a personality behind the bar” við annan kúnna. Hlýnaði pínu um hjartaræturnar.
..að ganga svo fram af einum kúnnanum í vinnunni að hún var allt kvöldið að jafna sig. ?g veit.. filthy but fabulous..
..að verða vitni að því þegar meðleigjandinn gelti að þokkafullri stelpu sem labbaði framhjá okkur og kveikti í henni kenndir.. sem betur fer heyrði daman það ekki. ?g hinsvegar rúllaði á gangstéttinni af hlátri..
..að ná að spotta fagra fallega kvenmannsleggi á förnum vegi á undan meðleigjandanum. Spurning hvort gay-radarinn hennar hafi verið bilaður þegar hún skannaði mig á sínum tíma? Eða er ég bara að verða svona meðvirk? Obbobb.. hver veit..? Haha…

Spurning hvaða ævintýri morgundagurinn býður uppá..

21/8

August 21st, 2008 – 9:16 pm
Tagged as: Blog

Já sæl..
Er voðalega löt þannig að ég ætla að hafa þetta stutt.

?g sótti um aðra vinnu í dag.. ég sótti um á veitingastað sem er að mér skilst að leita að part time fólki á barinn sem myndi koma sér rosalega vel fyrir mig þar sem mig vantar bara djobb til uppfyllingar. zað gæfi manni líka kost á að kynnast fleira af fólki.. Eitthvað lítið af krökkum á manns aldri á pöbbanum mínum.
?g fór samt með tveimur lókölum (passaði mig samt á því að þeir væru með tennur) í Casino í Southampton um daginn.. það var nú meira ruglið. Maður er einhvernveginn búinn að sjá spilavíti umvafin einhverjum glamúrljóma, svona eins og í James Bond, en þetta var ekki alveg með sama standard. zau eru það víst fæst hérna.. að sama skapi áttaði ég mig á því að ég hreinlega sökka í Black Jack þannig að ég hugsa að ég eigi ekki mikið erindi þangað hvort eð er..
?g lét mig samt hverfa þegar annar maðurinn var farinn að segjast vera svo hrifinn af mér og langa til að giftast mér.. hann gæti hugsað svoo vel um mig því hann væri svo vel stæður. Jahá.. einmitt.. kjánahrollurinn lét ekki á sér kræla. Maðurinn hefur samt ekki sést á barnum síðan þá. Haha..

Á morgun er svo verið að spá æðislegu veðri.. blankandi sólskin, sjeikfílingur og tóm gleði. ?g (húsbóndinn), frúin og barnið erum allar í fríi á morgun þannig að við ætlum að dúllast saman.. er búin að panta barnið í myndatöku og ég er bara virkilega farin að hlakka til. Búin að vera að vanrækja myndavélina allt of lengi. ?g er ekki einu sinni búin að taka myndir af slotinu.. lélegur árangur það. En það er aldrei að vita nema ég smelli þeim líka af á morgun..

Jæja.. letin hefur náð hámarki..
-ppdeita væntanlega á morgun með myndum.
Axx

17/8

August 18th, 2008 – 12:21 am
Tagged as: Blog

Update í punktaformi því það er svo kúl..:

* ?g er orðin amma.. eða svona því sem næst. Lítil kanína að nafni Ziggy hefur bæst í hópinn..
* J meðleigjanda datt í hug að gera hana að innikanínu… ég er ekki eins spennt..
* J, þessi sem fór að hitta kærustuna sína í Tyrklandi eftir að hafa ekki hitt hana í rúmlega ár, kom trúlofuð til baka.
* Eftir því sem unnustan hennar best veit þá er ég komin yfir þrítugt.. já takk fyrir það.
* Hún er einnig afbrýðisama týpan og hef ég því verið beðin um að halda “lyginni” við þegar hún kemur í heimsókn. ?g sagðist hugsa málið..
* Foreldrar hvorugrar þeirrar vita af sambandinu og hvað þá að þær séu samkynhneigðar. Strangtrúaðir kaþólikkar vs. strangtrúaðir múslimar..
* Við búum víst í slömminu.. járnbrautarbrúin við hliðina á húsinu skilur okkur dömurnar frá siðmenningunni.
* Er því mjög þakklát fyrir að vera svona nálægt teinunum núna..
* Tek n.b. ekki eftir lestunum lengur.. húrra fyrir því.
* Liggur við að öskurapinn í næsta húsi yfirgnæfi þær líka..
* Á ekki eftir að sakna hans þegar ég kem til landsins..
* Á bókaðan miða þann 15. október.. Airwaves, here I come.
* Fer samt líklega í millitíðinni til Edinborgar að kveðja góðan bekkjarfélaga sem féll fyrir hendi bróður síns fyrr í vikunni.. óskiljanlegur og afar ósanngjarn heimur oft á tíðum..
* Jákvæða hliðin verður samt að sjá framan í alla félagana.. sem betur fer skilja þeir ekki íslensku því þeir fá ekki að komast að því fyrr en ég mæti… ef ég mæti.. vona að ég mæti..

Jæja.. gott í bili..
Fer sennilega í að mynda herlegheitin á morgun þannig að þið getið séð dýrðina. Súperman, málverk eftir yours truly og hjólhýsið margfræga í bakgarðinum.. jáh, white trash er orðið.
XX

12/8

August 12th, 2008 – 10:31 am
Tagged as: Blog

Neglurnar mínar vaxa á svo miklum ljóshraða hérna úti að það er eiginlega bara hálf scary. Var farin að vakna með rispur á ótrúlegustu stöðum.. I know, yum!
Á móti hefur beltið mitt þrengst um eitt gat..
?tli það séu einhver tengsl þarna á milli?