25/11

November 26th, 2008 – 2:00 am
Tagged as: Blog

It’s been a while, ég veit. Ég er bara hreinlega búin að vera að drukkna á svo marga vegu…
…hérna eru hinsvegar nokkrir punktar síðustu vikna:

Helgina eftir hrekkjavöku lagði undirrituð upp í reisu.. London var tækluð yfir nótt á föstudeginum þar sem Ópall var tekinn með trompi. Kannski full miklu trompi..
Daginn eftir var leiðinni heitið til Reading þar sem áttu sér stað miklir fagnaðarfundir á fótboltavellinum. Leiðin á völlinn var nú ekki eins gleðileg þar sem ungar fótboltabullur höfðu lagt undir sig öftustu sætin í rútunni og fannst ekki annað hægt en að við hin myndum njóta söng, klapp, stapp og öskurhæfileika þeirra. Needless to say þá var þráðurinn orðinn ansi stuttur þegar bílstjórinn loks lagði í hlaðið á vellinum. Við Hrefna og Sif máluðum bæinn hinsvegar fagurbleikan eftir 3-0 sigur Reading og áttum góðar stundir saman sem bættu óneitanlega upp fyrir hausverkinn sem hafði snarversnað við ófögnuðinn í rútunni. Takk fyrir mig!

Um svipað leiti fékk ég verkefni í skólanum sem átti að byggja á Contemporary Fiction. Ég byggði mitt á setningu úr Kalla og sælgætisgerðinni sem hljómar svo: “Oh, how he loved that smell!”. Verkefnið sem átti að vera 3 plaggöt fæddist svo loksins barasta í morgun eftir rosalega erfiða fæðingu, þ.e. endanlega lokaútkoman. Eftir að hafa tvinnað aumingja Kalla við sexual attraction via smell, nakið kvenmannshold og lostafulla fæðu þá varð ég loksins sátt… og sama má segja um kennarana. Í dag var krídík og átti ég satt best að segja ekki von á svona góðum viðbrögðum. Einn kennarinn minn stoppaði mig meira að segja á ganginum seinna um daginn til þess að leggja áherslu á hvað hann væri hrifinn af útkomunni. Chuffed? Ójá.

Svo til að gjörsamlega sprengja egóið mitt þá bað Nina mig um að taka þátt í samsýningu sem hún er að skipuleggja. Hún er að vinna í galleríi í London og fékk það verkefni að stjórna sýningu í byrjun janúar. Ehh.. ég gat að sjálfsögðu ekki neitað boðinu og er strax farin að iða í skinninu af tilhlökkun. Það lítur út fyrir að afkvæmin mín 3 sem ég gerði fyrir áðurnefnt skólaverkefni fái að prýða veggina þar en Nina, ásamt stjórnanda gallerísins, kolféllu fyrir þeim.. það eru því spennandi tímar framundan:)

Þetta verður að duga í bili.. tími á bólið.
X

WordPress database error: [Table 'arnarunars.wp_comments' doesn't exist]
SELECT * FROM wp_comments WHERE comment_post_ID = '95' AND comment_approved = '1' ORDER BY comment_date

2 Comments

» Leave a comment now

No comments yet.

» RSS feed for comments on this post.
» TrackBack URI


Leave a Comment

  1. XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>