2/11
Ef einhver var svo sætur að kommenta frá því að ég bloggaði síðast þá langar mig að biðja þann hin sama afsökunar á að hafa ekki samþykkt það. Ég hafði ekki nokkra lyst á að renna í gegnum þessi 3876 spam komment sem biðu mín þegar ég loggaði mig inn til að sjá hvort eitthvað væri ekta þar á milli. Fyrr má nú aldeilis vera… ojjj! Ég er ennþá að eyða út.. hvernig nennir fólk þessu?
En já.. stemmningin hefur ekki beint verið bloggvæn síðan síðast. Ísland var æði.. reyndar fann maður alveg hvað er þungt yfir landanum eitthvað svoleiðis að mér fannst ekkert slæmt að koma út aftur. Ég sé samt alls ekki eftir því að hafa farið heim.. kláraði smá unfinished business svoleiðis að ég get sofið rólega og svo var sennilega hápunkturinn að sjá Junior Boys live á Nasa.. ég fæ ennþá gæsahúð við tilhugsunina. Ó boj..
Það var nú ekki eins yndislegt að koma heim í skítinn sem beið mín.. ég henti töskunum inn í herbergi og fór svo út aftur. Hvernig er hægt að skilja eftir svona mikinn sóðaskap? Ástandið hefur nú verið misgott so far en ekki var það neitt að skána svoleiðis að ég tók þá ákvörðun að flytja. Æ svo hefur mér og öðrum meðleigjandanum ekki komið neitt sérstaklega vel saman undanfarið þannig að það var ekki til að bæta ástandið.. flutningur var bara fyrir bestu held ég. Ég hefði eflaust ekki þraukað mikið lengur.
Mútter kom svo í heimsókn á mánudaginn og var fram á föstudaginn og ástandið var það slæmt að ég gat ekki einu sinni fengið mig til að bjóða henni að gista hjá mér vegna þess hvað íbúðin var ógeðsleg. Við enduðum á því að gista á hótelinu mínu.. vorum þar í góðu yfirlæti en þetta er nottla nokkuð sem maður á ekki að þurfa. Hún kom nú samt með mér í slotið þegar ég fór að ná mér í föt og hún var ekki hissa á því að ég skyldi vilja flytja. Ég hringdi því í leigusalann á fimmtudaginn og sagði henni sem var að ég yrði að segja upp samningnum mínum. Hún var alveg skilningsrík á aðstæðunum en hún hafði komið við í íbúðinni um daginn og gjörsamlega blöskrað draslið. Gallinn er samt að þar sem ég er með árssamning þá þarf ég að borga leigu þangað til ég finn nýjan leigjanda í herbergið. Ég er vonandi búin að leysa það en vinnufélagi eins regularsins er búinn að koma að skoða og er mjög áhugasamur. Hann hittir leigusalann á þriðjudaginn þannig að þetta kemur í ljós þá.
Ég fór samt á netið á föstudaginn í íbúðaleit og fann 2 sem mér leyst á þannig að ég sendi þeim póst. Annar leigusalinn hringdi í mig samdægurs og við hagræddum viewing á laugardeginum sem fór svo ljómandi vel að við ákváðum að ég myndi flytja inn… daginn eftir. Jájá… ekkert að hika neitt. Ég sit því hérna í nýja herberginu mínu alveg gríðarlega sátt við lífið. Skólinn er í 10 mín. fjarlægð, bærinn í 10 mín. fjarlægð, lestarstöðin í 5 mín. fjarlægð og vinnan í 12 mín fjarlægð… þetta gæti varla verið betra.
Á föstudeginum var svo hrekkjavökupartí á barnum og tók Eva Dagbjört sig til og skellti sér í ferðalag yfir í sveitina til mín. Við máluðum bæinn svo sannarlega rauðan og skemmtum okkur konunglega.. þetta verður að endurtaka við tækifæri, svona með vissum undantekningum.. obbobb. Ég er ennþá að jafna mig…
Skólinn er algert æði.. fíla hann í tætlur og finnst ég algerlega vera á réttum stað. Ég er búin að fá góða dóma fyrir það sem ég hef gert hingað til þannig að það er barasta allt jákvætt við hann. Ég er búin að skila inn 2 verkefnum sem ég verð endilegaað mynda og setja inn á netið fyrir áhugasama.. ég læt vita þegar það kemur að því.
En jæja, ég er hætt núna. Þið sem komist í gegnum þetta blaður eigið inni táslunudd.
XX

