8/10

October 8th, 2008 – 3:15 pm
Tagged as: Blog

Já gott fólk.. ég er á lífi. Er bara ekki beint í bloggstuði. Það er bara ekkert gaman að fylgjast með gengisbreytingunum og helvítis ruglinu sem er í gangi heima. Ég á eftir að gera upp skólagjöldin og eins og staðan er í dag þá er tilhugsunin um að borga þau ekki gleðileg.. pundið var 155 þegar ég flutti út í júlí en núna? Ég hreinlega veit það ekki þar sem gengið breytist á mínútufresti. Síðast þegar ég gáði var það 240 krónur og til að toppa þetta þá virðist fólki ekki einu sinni vera heimilt að taka peningana sína út. Krakkar… ég hef á tilfinningunni að ég sé screwed. Þar sem þetta er sífellt on my mind þá hef ég ekki átt neitt sérlega auðvelt með að einbeita mér að skólanum sem er langt frá því að vera gott mál.

Samt svona á góðu nótunum þá líst mér rosalega vel á skólann.. þetta ætlar að verða mjög spennandi vetur. Þ.e. ef ég þarf ekki að hætta sökum þess að geta ekki greitt skólagjöldin. Íslendingurinn í mér reynir að hugsa með sér “þetta reddast” en ég leyfi þeirri hugsun ekki að brjótast út úr hýðinu just in case I jinx it…
Þetta er ekki hægt. Maður verður að vera bjartsýnn.. það er samt eitt að segja það og annað að vera það. Ég reyni..

WordPress database error: [Table 'arnarunars.wp_comments' doesn't exist]
SELECT * FROM wp_comments WHERE comment_post_ID = '91' AND comment_approved = '1' ORDER BY comment_date

No Comments

» Leave a comment now

No comments yet.

» RSS feed for comments on this post.
» TrackBack URI


Leave a Comment

  1. XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>