28/9
Ég heiti Amy… eða svo heldur Dolphin Boy. Skömmu eftir að ég byrjaði að vinna hérna spurði hann mig hvort ég héti ekki Amy en ég neitaði því nú og sagðist heita Arna. Það hefur greinilega ekki farið í gegnum skammtímaminnið og ég hef einhvernveginn ekki fengið mig til þess leiðrétta hann. Vegna þess hversu langt er síðan hann hóf að kalla mig Amy þá held ég að það yrði hreinlega bara of vandræðalegt fyrir mig að upplýsa hann um stöðu mála. Því mun ég heita Amy um óákveðinn tíma.
Muniði eftir gæjanum sem fór með í spilavítið um daginn? Þessum sem ætlaði að giftast mér? Hann rekur sitt eigið fyrirtæki og veit því ekki aura sinna tal, believes money can buy happiness, veðjar á nánast allt sem honum dettur í hug og tekur hvítt í nefið svona til hátíðabrigða eins og sönnum uppa sæmir.. sem ég vissi ekki fyrr en bara um daginn og ykkur að segja þá missti hann þetta litla respect sem ég hafði fyrir honum þegar félagi minn glopraði þessu út úr sér.
En já… þessi maður ákvað að veðja 500 pundum við einn annan fastakúnna, sem er með húðflúrs-bodysuit í vinnslu, að hann myndi ekki þora að láta flúra á sér skaufann. Viti menn… einn góðan veðurdag labbar gaurinn inn, gleiðfættari en vanalega og frekar aumur á svipinn. Jújú… hann lét smella einum góðum dreka á hann. Kvikindið verður svo afhjúpað á laugardaginn en ég bað hann sérstaklega um að bíða með það til klukkan 7 því þá yrði ég að vinna.. það var sko minnsta málið.
Og já… það er dálítið litríkt lið sem rúllar hérna inn reglulega.. haha.
Kjúklingabrandarinn heldur áfram að vinda upp á sig. Núna erum við stöllur búnar að búa til stuttermaboli fyrir vinnuna með mynd af kjúlla aftan á og fyrir ofan hann stendur “Guy’s Chick” en Guy er nafn yfirmannsins. Hver og ein er svo með sitt slangur framan á en mitt er “Aunti Arna.. old and wise. No, really!”. Jess meðleigjandi sem vinnur hérna líka er með “Jess who has never been to Amsterdam” en hún er ansi oft spurð hvort hún reyki weed. Ani, hinn meðleigjandinn minn, er einnig orðin fastakúnni fékk að sjálfsögðu einn sem á stendur ” Ani. Believe it or not but she doesn’t really work here.” Í gærkvöldi ákváðum við svo að vígja bolina í hinu árlega krikketmatarboði sem er alltaf haldið á barnum og needless to say þá vöktu þeir rosalega lukku.. næsta skref er að útbúa boli á vinnuveitendurna en það gafst ekki tími til þess fyrir gærdaginn.
Í gærdag ákvað ég svo að láta undan áskorun nokkurra fastakúnna og mætti ég í minn allra fyrsta tennistíma. Það var frekar skrautlegt svo ekki sé annað sagt. Flestir boltarnir sem ég hitti þegar kennarinn var að kenna mér forehand enduðu á vellinum við hliðina þrátt fyrir rúmlega 3 metra hátt grindverk. Ég var nú heldur skárri þegar hann kenndi mér backhand nema hvað að af einhverri ókunnri ástæðu þá stefndu allnokkrir beint á ríka gæjann sem ég minntist á hér að ofan svoleiðis að hann átti fótum sínum fjör að launa. Ég virðist ekki alveg hafa tennisgenið í mér en er samt staðráðin í að mæta aftur.. þetta er bara nokkuð gaman. Tókst samt eftir sem áður að beita skrokknum eitthvað vitlaust í einni sveiflunni svoleiðis að ég er vel aum í annarri rasskinninni.. hressandi, ójá.
Á morgun er svo fyrsti skóladagurinn.. eða þ.e. þá hefst freshers week. Ég er gríðarspennt eins og gefur að skilja enda ekki á hverjum degi sem manni gefst kostur á að fara á viku fyllerí með 18 ára púddum. Á morgun er búið að plana 2-3 tíma ferð um Winchester og campusinn. Ekki veit ég hvern fjandann þeir ætla eiginlega að sýna okkur en mér reiknast svo til að Winchester sé hægt að skoða á góðu korteri.. ekki er bærinn mikið stærri en það. Ég er samt vel spennt fyrir því að fara loksins að byrja í skólanum.. þetta er alveg orðið ágætt.
Til hamingju þið sem komust í gegnum þessa færslu.. hún er held ég svona í lengri kantinum.
Axx

