25/9

September 25th, 2008 – 4:03 pm
Tagged as: Blog

Hugsa sér hvað tíminn líður hratt. Á morgun eru sléttir tveir mánuðir síðan ég lenti á Stansted, eftir þrengstu flugferð sem ég hef nokkurntímann upplifað, með enga íbúð, enga vinnu en samt sem áður tilbúin að stinga mér í djúpu laugina. Það er dálítið skrítið að hugsa til baka og sjá hvað ég er í raun búin að vera heppin.. auðvitað er tíminn ekki búinn að vera áfallalaus en þær uppákomur sem maður er búinn að lenda í hafa í rauninni bara orðið til að skreyta dvölina. Enginn varanlegur skaði.. haha.

Síðustu dagar eru búnir að vera nokkuð góðir þrátt fyrir óvelkomið kvef en ég er nú öll að skána. Fínt að taka það út áður en háskólinn byrjar. Ég skrapp til London á sunnudaginn til að heimsækja Ninu og lenti í ansi hressu barbíkjúi sem endaði sem nostalgíukast á youtube og tryllt dance-off í eldhúsinu. Við vorum nú eitthvað mishressar á mánudeginum en afrekuðum samt sem áður að fara á Tate Modern þar sem við stálumst til að taka myndir á símann þegar verðirnir sneru bakinu í okkur.. enduðum svo daginn á Pizza Express þar sem við lentum á frekar óhuggulegum þjón. Needless to say þá snuðuðum við hann um tipsið hans.. vondar? Kannski smá..

Ég er búin að ákveða að virkja Englendinginn í mér örlítið en ég lét plata mig til að mæta á tennisæfingu á laugardaginn. Það ætti að verða áhugavert. Fer með nokkrum kúnnum úr vinnunni þannig að þetta verður sennilega bara dálítið gaman þrátt fyrir afleit tilþrif.

Og já.. smá tilkynning til þeirra sem eru kannski ekki búnir að frétta, en ég er að koma til Íslands 15. okt. Ég sá fram á að það yrði of langur tími að koma ekkert heim fyrr en um jólin og ákvað því að nýta tækifærið á meðan Iceland Airwaves verður í gangi. Ég kem ekki til með að fara austur þar sem stoppið er stutt en ef þið verðið í bænum á tímabilinu 15.-20. okt. þá megiði endilega vera í bandi og við sjáum hvort við náum að arrangera eitthvað þrátt fyrir bissíheit. Ég sé svo fram á 3-4 vikna jólafrí þannig að if worst comes to worst þá ætti að gefast hellings tími þá til að stússast. Þið vitið að ég elska ykkur:)

Er ég samt ein um að vera geðveikt spennt yfir þessu?? Haha…

Ta!

WordPress database error: [Table 'arnarunars.wp_comments' doesn't exist]
SELECT * FROM wp_comments WHERE comment_post_ID = '87' AND comment_approved = '1' ORDER BY comment_date

4 Comments

» Leave a comment now

No comments yet.

» RSS feed for comments on this post.
» TrackBack URI


Leave a Comment

  1. XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <code> <em> <i> <strike> <strong>